Fullkominn dagur til drauma
Frumsýnt 30. september 2011
Danshöfundur: Anton Lachky í samvinnu við dansara Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Þyrí Huld Árnadóttir
Tónlist: Sálumessa eftir Guiseppe Verdi, Sálumessa í D moll eftir Luigi Cherubini
Ljósahönnun: Aðalsteinn Stefánsson
Aðstoðarmaður danshöfundar: Elenore Valere
Æfingastjóri: Tinna Grétarsdóttir
Í draumi færast átök og umhverfi frá einum stað til annars, upplifunin er raunveruleg en á sama tíma draumkennd. Upplifun skilningarvitanna og sterk tilfinning um veru á vissum stað hríslast um líkamann en allt í einu flyst vitundin annað og aðstæður eru skyndilega ókunnar.
Í sköpunarferlinu vann Lachky náið með dönsurum Íslenska dansflokksins enda tekst honum að laða fram sérkenni hvers dansara og flétta þeim sérkennum saman við persónulegan, hnyttinn og duttlungafullan stíl sinn.
„Hver dansari er í mínum augum eins og teiknimyndafígúra. Ég reyni að sjá þau eins og þau eru, þó með mínum eigin augum“ segir Lachky. „Annar mjög mikilvægur þáttur í vinnslu verksins er líkamlegi þátturinn, sem endurspeglar þéttleika og kraft líkamans, fegurð dansins í sínum margbreytileika en um leið í einfaldleika sínum.
Anton Lachky og dansarnir fengu Grímuna sem danshöfundar ársins 2011.
Deila á Facebook- 30
- SEPT 2011
- 7
- OKT 2011
- 9
- OKT 2011
- 23
- OKT 2011
- 30
- OKT 2011
- 6
- NÓV 2011
Gagnrýni
- Morgunblaðið, 5. Október 2011, Margrét Áskelsdóttir
- Íslenski dansflokkurinn hefur sjaldan verið eins vel mannaður og tæknileg færni dansaranna er sérlega góð
- Fréttablaðið, 6. Október 2011, Sesselja G. Magnúsdóttir
- Einfalt verk, skapað utan um færni dansaranna sjálfra, vel unnið og skemmtilegt. Ef mann langar að hlæja á danssýningu þá er Fullkominn dagur til drauma svarið.
- Einfalt verk, skapað utan um færni dansaranna sjálfra, vel unnið og skemmtilegt. Ef mann langar að hlæja á danssýningu þá er Fullkominn dagur til drauma svarið.
