Forsíða
Facebook síðan okkar Flickr myndirnar okkar YouTube myndböndin okkar Hafðu samband English version

White for Decay

Danshöfundur: Sigríður Soffía Níelsdóttir í samvinnu við dansara

Tónlist: Jóhann Friðgeir Jóhannsson

Lýsing: Kjartan Þórisson

Búningar og stílisti: Ellen Loftsdóttir

Aðstoð við danshöfund: Snædís Lilja Ingadóttir, Gianluca Vincentini

Verkið er samið fyrir sex dansara og spiladós.  Fjórir dansarar flytja verkið sem fjallar um líf og sambönd fólks  í óvenjulegum  aðstæðum. Hvernig erfiðar aðstæður geta breytt manneskju eða persónuleika þeirra varanlega.  Hvernig örvænting líkamnast, fólk virðist breytast í skuggann af sjálfum sér.   Í hugmyndavinnu fyrir verkið  var farið víða og  meðal annars unnið út frá fréttagreinum úr "Öldin okkar 1939-51".

  • 4
    • mars 2011
  • 5
    • mars 2011
  • 6
    • mars 2011
  • 8
    • mars 2011
  • 9
    • mars 2011
  • 11
    • mars 2011
  • 12
    • mars 2011
  • 13
    • mars 2011

Gagnrýni


  • Pressan, 10. mars 2011. Bryndís Schram
    • "Sigríði Soffíu er greinilega ýmislegt til lista lagt, því hún fæst líka við kvikmyndagerð og hefur stundað nám í sirkusdansi. Myndlist er henni ofarlega í huga. Allt þetta endurspelgast í verkinu og er hrundið áfram af seiðandi en dramatísku tonverki Jóhannesar Friðgeirs Jóhanssonsar. Flott samspil milli tónskálds og danshöfundar."
    • "Öll fjögur (dansararnir) sýna þau ótrúlega tækni og flott samspil í seinni hlutanum, sem flæðir eins og stríð elfur um sviðið og fjarar síðan smám saman út."
  • Morgunblaðið, 8. mars 2011. Bryndís Schram
    • Notast er við ólík hreyfiform, m.a. sirkuslist, nútímadans og stepp. Umgjörð verksins; hljóðheimur, sviðsmynd, búningar og lýsing, er mjög vel útfærð. Verkið er því mjög sjónrænt og býr yfir sterkri heild.
 

Af flickr