Forsíða
Facebook síðan okkar Flickr myndirnar okkar YouTube myndböndin okkar Hafðu samband English version

Hel haldi sínu

Frumsýnt 5. október 2012

Danshöfundur: Jérôme Delbey

Tónlist: Richard Strauss og Anna Þorvaldsdóttir

Ljósahönnun: Magnús Helgi Kristjánsson

Búningahönnun og leikmynd: Jérôme Delbey

Aðstoð við búningahönnun: Guðlaug Elsa Ásgeirsdóttir

Æfingastjóri: Ásgeir Helgi Magnússon

 

Eitt af tveimur verkum í októberuppfærslu Íslenska dansflokksins

...þegar bræður og systur rotna við endalok daga og eru gleypt af glóandi öldum; í þessari heljarreið streyma fram hvítir þræðir nýrrar sólar, nýrrar dögunar.

Hel haldi sínu fjallar um sköpun og eyðileggingu heimsins út frá gömlu norrænu trúarbrögðunum.

  • 5.
    • OKT 2012
  • 11
    • OKT 2012
  • 14
    • OKT 2012
  • 21
    • OKT 2012
  • 18
    • NÓV 2012
  • 25
    • NÓV 2012

Gagnrýni


  • Fréttablaðið, 9.10.2012. Sesselja G. Magnúsdótti
    • Tónlistin var áhrifamikil og hélst í hendur við lýsinguna og leikmyndin sem kom mjög vel út.
    • Niðurstaðan er flæðandi og sterkar hreyfingar með mikilli gólfvinnu og hver dansari fær að njóta sín.
    • Það eru líka langir flottir kaflar þar sem dansararnir dansa samdans í ætt við snertispuna, ýmist í pörum eða í hóp og í öllum senunum sést að dansararnir eru í fantaformi.
  • Morgunblaðið, 9.10.2012. Ásgerður G. Gunnarsdóttir
    • gaman var að sjá á sviði dansara af eldri kynslóðinni, sem hefur ekki borið mikið á hér á landi.
  • Víðsjá, 10.10.2012. Ástbjörg Rut Jónsdóttir
    • Öll umgjörðin er fagurfræðilega sterk; búningar, leikmynd, lýsing og tónlist spila vel saman og skapa drungalegt og draumkennt andrúmsloft.
    • Verkið er hlaðið spennu og trega, það er kynþokkafullt og oft mjög áhrifamikið. Ólík öfl togast á og dauðinn er nærri.
    • Það er magnað að sjá hvað færir og reyndir dansarar hafa mikið vald á líkama sínum og tilfinningum. Tjáning þeirra þarf engin orð, tilfinningarnar komast fullkomlega til skila í gegnum líkamsbeitingu þeirra og svipbrigði.
  • Djöflaeyjan, 09.10.2012
    • Það voru allir stórkostlegir í þessu. Mér fannst þetta bara stórkostlegt í alvöru talað. Þetta var kynþokkafullt, þetta var sterkt, flottustu slagsmálaatriði sem maður hefur séð. Þeir sem fíla Vesturport þeir eiga að koma hingað að sjá þetta.
 

Af flickr