Um Íslenska dansflokkinn
30. ágúst 2011
Sýningarár 2011-2012

Sparaðu með danskorti Íd í vetur – rúmlega 40% ódýrara
Einn miði á allar fjórar uppfærslur flokksins í vetur plús einn aukamiði á Svaninn fyrir aðeins 7.900 kr. Fullt verð fyrir allar sýningar er 14.000 kr.
Hafið samband við miðasölu Borgarleikhússins í síma 568 8000 til að tryggja þér Danskort Íd. Handhafar áskriftarkorts Borgarleikhússins geta einnig tekið eina eða fleiri af sýningum Íslenska dansflokksins inn í sitt val.
UPPFÆRSLUR 2011-2012
FULLKOMINN DAGUR TIL DRAUMA
Eftir Anton Lachky úr hinum þekkta danshóp les Slovaks
Óður til dansins. Fegurð og styrkur hins dansandi líkama undir klassískum tónum Verdis. Anton Lachky fléttar saman þjóðdansi og nútímadansi á sinn skondna, persónulega og duttlungafulla hátt.
Frumsýnt 30. september 2011 – Stóra svið Borgarleikhússins
Aðrar sýningar: 07/10 - 09/01 - 23/10 – 30/10 – 06/11
SVANURINN
Eftir Láru Stefánsdóttur
Vegna fjölda áskorana verður þetta vinsæla verk sýnt aftur. Svanurinn er rómantískur og fallegur dúett fyrir alla fjölskylduna.
Sýnt alla sunnudaga í nóvember – Tjarnarbíó
Sýningardagar: 06/11 – 13/11 – 20/11 – 27/11
MINUS 16
Eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin
Glettið og beinskeytt verk sem hefur slegið í gegn um allan heim. Minus 16 brýtur niður múra á milli flytjenda og áhorfenda og spannar skalann frá Dean Martin til cha-cha-cha.
Verkið Groβstadtsafari eftir Grímuverðlaunahafann Jo Strömgren verður einnig sýnt sama kvöld. Groβstadtsafari er kraftmikið og spennuþrungið dansverk sem gefur dönsurum flokksins tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.
Aurora velgerðasjóður styrkir uppsetningu Minus 16.
Frumsýnt 4. febrúar 2012 – Stóra svið Borgarleikhússins
Aðrar sýningar: 12/02 - 19/02 - 22/02 - 26/02 - 03/03 – 10/03
Á VIT...
Framandi ferðalag skilningarvitanna um heim dans, tónlistar og myndmáls. Íslenski dansflokkurinn og GusGus bjóða til veislu, í samstarfi við Hörpu og Listahátíð í Reykjavík, þar sem sameinaðir eru kraftar ólíkra listforma og frumsýndar verða stuttmyndir Reynis Lyngdal og Katrínar Hall. Filippía Elísdóttir og Aðalsteinn Stefánsson sjá um umgjörð verksins, leikmynd og búninga.
Frumsýnt 18. maí 2012 í Norðurljósasal Hörpu
Aðrar sýningar: 19/05
Sýningarferðir 2011-2012
1. Künstlerhaus Mousonturm í Frankfurt
Verkið Transaquania – Into Thin Air eftir Ernu Ómarsdóttur, Damien Jalet og Gabríelu Friðriksdóttur -
Sýnt 14 og 15. Október 2011 - Miðasala og nánari upplýsingar hér
2. Gerald W. Lynch Theater í New York
Verkið Kvart eftir Jo Strömgren verður sýnt á APAP kaupstefnunni í samstarfi við Nordic Countries on Stage in New York 2012 og CINARS. Einungis tvö verk frá Norðurlöndunum verða sýnd og var Kvart ásamt verkinu Warriors eftir Pontus Lidberg fyrir valinu. Nordic Countries on Stage in New York 2012 er norrænt samstarfsverkefni með það að markmiði að kynna sviðslistir til alþjóðasamfélagsins.
Sýnt 7. Janúar 2012
















