Image

Stev_epli_SMagg 
Sjá myndband af
strákanámskeiði Íd hér 

Til að fá frekari upplýsingar
smelltu hér!

kedja.jpg


 


Íslenski dansflokkurinn


Miðasalan 568 8000
Opnunartímar eru: mán. og þri. kl. 10 – 18 mið., fim. og fös. kl. 10 – 20 lau. og sun. kl. 12 - 20


Sími 588 0900

Fax 588 0910

Netfang id@id.is

www.id.is


Hafðu samband

Miðasala


Tryggðu þér miða

 

Viltu kaupa Dansara?
Áskriftarkort Íslenska dansflokksins er enn á sömu góðu kjörunum
Með Dansaranum, áskriftarkorti Íslenska dansflokksins, færðu að velja miða á þrjár af fjórum sýningum flokksins í vetur fyrir aðeins kr. 6000 eða aðeins kr. 2000 fyrir hverja sýningu  (fullt verð fyrir 3 sýningar er kr. 10.350).

Hringdu í síma 568 8000 til að tryggja þér þetta kosta boð.

 

Sýningarárið 2009-2010

Smelltu hér til að kaupa miða á sýningar flokksins

September – október
Fjölskyldusýning - Frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
ÍD sýnir brot úr fimm skemmtilegum og aðgengilegum verkum fyrir ungt fólk og fjölskyldur sem hafa ánægju af og áhuga fyrir nútímadansi og leikhúslífinu.  Frábær sýning fyrir alla þá hefur  alltaf langað -  en ekki látið verða að því -  að koma á sýningju hjá dansflokknum
Sýnt á Stóra sviðinu 27/9  4/10  11/10 og 18/10 

Nóvember
Djammvika (2x2) - Fersk og tilraunakennd dansveisla
ÍD sýnir fjögur verk í vinnslu eftir framsækna og spennandi danshöfunda. Þetta eru Kristján Ingimarsson, Tony Vezich, Steinunn Ketils ásamt Brian Gerke og Peter Anderson. Höfundarnir fara  ótroðnar slóðir og þenja formið.
Sýnt á Nýja sviðinu: Fyrri tvö verkin sýnd 25/11 og 26/11  Seinni tvö verkin 27/11 og 28/11                    

Febrúar
Endalaus - Framúrskarandi verk eftir verðlaunadanshöfund
ÍD sýnir nýtt frumsamið verk eftir Alan Lucien Oyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan er þekktur fyrir fallegar og tilfinningaríkar sýningar sem innihalda bæði  ljóðrænan dans og mælt mál. 
Sýnt á Stóra sviðinu: 4/2  7/2  14/2  21/2  28/2  og 7/3           

Hægt er að kaupa miða á sýningar flokksins hér - en einnig er hægt að ræða við miðasölu Borgarleikhússin til að fá frekari upplýsingar í síma 568 8000.