Íslenski dansflokkurinn
Miðasalan 568 8000
Opnunartímar eru: mán. og þri. kl. 10 – 18 mið., fim. og fös. kl. 10 – 20 lau. og sun. kl. 12 - 20
Sími 588 0900
Fax 588 0910
Netfang id@id.is
Fréttir
Sýningarár Íd 2010-2011, kynjaverur, Shakespeare og sirkuslistir
Starfsemin hjá Íslenska dansflokknum er komin á fullt og eru starfsfólk og dansarar nú að hita upp fyrir fjölbreytt sýningarár. Íd mun setja upp þrjár uppfærslur í Borgarleikhúsinu sýningárið 2010-2011 og einnig bjóða Norðlendingum upp á bráðskemmtilega sýningu sem er ætluð allri fjölskyldunni.
Frumsýning 7. október 2010
Transaquania – Into Thin Air
Sagan af kynjaverum Transaquaniu heldur áfram. Sjónræn upplifun framreidd af okkar besta listafólki
Sýningarár Íslenska dansflokksins hefst 7. október með frumsýningu á Transaquania – Into thin Air. Höfundar verksins eru Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir. Tónlistin er í höndum Ben Frost og Valdimars Jóhanssonar. Þessi fjölhæfi hópur listafólks hefur unnið náið saman í gegnum tíðina og náð einstökum samruna dans-,tón- og myndlistar. Transaquania – Into thin Air er sjálfstætt framhald af hinu óvenjulega verki Transaquania - Out of the Blue“ sem Íslenski dansflokkurinn sýndi í Bláa Lóninu í apríl 2009.Nánar
Við erum komin í langþráð sumarfrí en í haust heldur sagan af kynjaverum Transaquaniu áfram
Transaquania - Into thin Air verður frumsýnt 7. október 2010. Hið feykisterka listræna teymi Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir kemur aftur til samstarfs við Íd í haust og skapar nú fyrir svið sjálfstætt framhald af hinu óvenjulega verki Transaquania - Out of the Blue, sem var sýnt í Bláa Lóninu í apríl 2009. Tónlistarmennirnir Ben Frost og Valdimar Jóhannsson munu eNánar

